Skemmtileg vika og flott árshátíð
Síðasti opni dagurinn hófst eins og venjulega á morgunæfingum. Það var ýmislegt í boði sem nemendur gátu valið um. Þar má nefna Crossfit, badminton, gönguferð með Mikka, æfingar í golfhermi, sælgætisgerð, kynningu á bandvefslosun, spjall á kennarastofunni eða þá bara að spjalla yfir spilum eða púsli. Opnum dögum lauk svo með mati nemenda á því hvernig til tókst. Þýsku gestirnir okkar völdu sér viðfangsefni eftir áhuga en þeir hafa blandast íslensku nemendunum ágætlega.
Árshátíð FAS gekk ljómandi vel. Borðhaldið var á Heppunni og matnum voru gerð góð skil. Eftir skemmtiatriði var haldið í Sindrabæ þar sem hljómsveitin Ær og kýr hélt uppi fjörinu.
Skólahald hófst svo með hefðbundnum hætti í morgun. Gestirnir okkar fóru í heimsókn í Skinney-Þinganes. Þar fengu þeir að kynnast fyrirtækinu bæði með því að fá kynningu og eins með því að ganga um vinnslusalina. Eftir hádegi var svo haldið inn að Hoffellsjökli með viðkomu í reiðhöllinni til að skoða hesta. Það var vindasamt inni við jökul en það gerði upplifun gestanna enn meiri því þeir gátu varla staðið kyrrir á jökulruðningunum. Landslagið við jökulinn er alltaf óviðjafnanlegt.
Gestunum var boðið í pizzahlaðborð á Heppunni og þar var síðasta samveran í bili. Þeir halda af stað í fyrramálið áleiðis til Keflavíkur og fljúga utan á sunnudagsmorgun. Annasöm en skemmtileg vika er að baki og íslenski hópurinn er strax farinn að hlakka til að endurgjalda heimsóknina í maí.
Hér má sjá nokkrar myndir frá fimmtudegi og föstudegi. Eins og áður í þessari viku er myndatexti á íslensku og þýsku.
- Crossfit.
- Crossfit.
- Crossfit.
- Crossfit.
- Crossfit.
- Crossfit.
- Crossfit.
- Gönguferð með Mikka. Spaziergang mit Mikki.
- Gönguferð með Mikka. Spaziergang mit Mikki.
- Badminton.
- Badminton.
- Brjóstsykursgerð. Herstellung von Bonbons.
- Golfhermir. Golfsimulator.
- Golfhermir. Golfsimulator.
- Golfhermir. Golfsimulator.
- Körfuboltakeppni. Basketball.
- Körfuboltakeppni. Basketball.
- Körfuboltakeppni. Basketball.
- Körfuboltakeppni. Basketball.
- Körfuboltakeppni. Basketball.
- Snyrtibuddur. Kulturtaschen.
- Þessar eru ánægðar með snyrtitöskurnar sínar. Sie sind zufrieden mit ihren neuen Taschen.
- Borðhaldið fyrir árshátíðina var á Heppunni. Das Essen var im Restaurant Heppan.
- Það voru allir kátir með matinn. Das Essen war sehr lecker.
- Flottur hópur. Eine coole Gruppe in cooler Kleidung.
- Birkir sagði hópnum frá vinnslunni. Birkir erzählte über den Verarbeitungsprozess.
- Hér er verið að skoða þorkshaus. Hier wird ein Dorschkopf gezeigt.
- Í fyrirlestrarsal fyrirtækisins. Im Hörsaal des Unternehmens.
- Bjarni Ólafur sagði okkur frá fyrirtækinu. Bjarni Ólafur erzählte uns von der Firma.
- Guðjón skólameistari með Flugu sína. Der Schulleiter Guðjón mit seinem Pferd.
- Það var gaman að koma sjá hestana. Alle waren zufrieden in der Reitehalle.
- Hoffellsjökull. Der Gletscher Hoffellsjökull.
- Það var mjög hvasst á jökulruðningunum. Es war sehr windig auf der Moräne.
- Það var mjög hvasst á jökulruðningunum. Es war sehr windig auf der Moräne.
- Það var mjög hvasst á jökulruðningunum. Es war sehr windig auf der Moräne.
- Pizzuhlaðborð á Heppunni. Pizzabuffet in Heppa.
- Pizzuhlaðborð á Heppunni. Pizzabuffet in Heppa.
- Pizzuhlaðborð á Heppunni. Pizzabuffet in Heppa.





































