„Rare Routes“ samstarfsverkefnið

FAS vinnur nú að umfangsmiklu samstarfsverkefni um ábyrga ferðaþjónustu ásamt skólum frá Tyrklandi og Ítalíu. Að því tilefni fóru fjórir kennarar frá FAS, allir úr fjallamennskudeildinni, til Adana í Tyrklandi til að hitta samstarfsaðilana. Sú ferð var farin um miðjan desember.
Ferðalagið var langt en þegar á áfangastað var komið var hitastigið um 15-20 gráður og mjög frábrugðinn menningarheimur. Fundardagarnir voru langir og strangir en við fengum þó að kynnast suðausturhluta Tyrklands, svæðinu sem jarðskjálftarnir nú í febrúar höfðu mikil áhrif á.
Dagana 27. febrúar – 4. mars tókum við í FAS ásamt Markaðsstofu Reykjaness á móti samstarfsaðilum okkar frá Tyrklandi og Ítalíu. Að þessu sinni funduðum við á Reykjanesi og ferðuðumst þar um og kynntum gestum okkar fyrir ábyrgri ferðaþjónustu á Íslandi.
Næsti liður í verkefninu er nemendaferð til Tyrklands en þangað halda þrír nemendur og tveir kennarar í apríl.
- Máltíð í Tyrklandi.
- Við erum öll landverðir. Ruslatínsla við hraunið í Meradölum.
- Sólveig útskýrir hvernig eldgos og eldfjöll virka fyrir Tyrkjunum.
- Kennarahópurinn frá FAS, frá vinstri, Íris, Sólveig, Svanhvít og Tómas.