Próf og próftaka
								- Reglur þessar gilda um próf og próftöku í áföngum sem eru kenndir af kennurum skólans.
 - Taki nemandi próf frá öðrum skólum þá gilda reglur þess skóla.
 - Áfangastjóri sér um próf sem tekin eru frá öðrum skólum.
 - Próftafla er gerð opinber fyrir miðja önn.
 - Nemandi hefur viku til að gera athugasemd við próftöflu eftir að hún hefur verið gerð opinber.
 - Athugasemdum við próftöflu skal komið til áfangastjóra.
 - Hægt er að sækja um það til námsráðgjafa fyrir lok kennslu að taka próf með öðrum hætti en hefðbundið er vegna fötlunar eða annarra hamlandi aðstæðna.
 - Námsráðgjafi auglýsir fámenna prófstofu og skráir í hana, að uppfylltum skilyrðum sem námsráðgjafi setur, þá nemendur sem óska eftir að vera í henni.
 - Nemandi getur sótt til skólameistara um breytingu á próftíma eða niðurfellingu á prófi ef aðstæður hans eru þannig að hann á erfitt með að koma í próf á auglýstum tíma.
 - Miðað er við að tekin séu lokapróf í öllum áföngum nema skipulag náms í áfanganum miðist við aðrar matsaðferðir. Fyrirkomulag námsmats liggur fyrir við upphaf annar og birtist í kennsluáætlun.
 - Þegar um munnleg próf er að ræða eru þau auglýst sérstaklega og fyrirkomulag þeirra er nánar skilgreint í kennsluáætlun.
 - Nemanda er skylt að mæta í munnleg próf.
 - Nemanda ber að mæta tímanlega til auglýstra prófa jafnt munnlegra sem skriflegra.
 - Geti nemandi ekki mætt til boðaðs prófs vegna veikinda þá ber honum að tilkynna það á skrifstofu skólans og skila síðan læknisvottorði fyrir sjúkrapróf.
 - Endurtektarpróf eru einungis ætluð nemendum á lokaönn í námi.
 - Kennari lítur til nemenda við upphaf próftíma og einu sinni eftir það að jafnaði.
 - Próf eru að jafnaði 120 mínútur og ekki er gert ráð fyrir að nemendur geti sótt um framlengingu á próftíma.
 - Nemandi skal að lágmarki vera 45 mínútur inn í prófi.
 - Nemandi sem mætir of seint í próf fær ekki sjálfkrafa framlengingu á próftíma.
 - Nemandi sem ekki er mættur til prófs þegar 45 mínútur eru liðnar af próftíma hefur fyrirgert rétti sínum til próftöku ef ekki koma til veikindi eða önnur lögmæt forföll.
 - Nemandi má ekki hafa hjá sér á borðinu eða á gólfi við hliðina nein önnur gögn en þau sem skráð eru á forsíðu prófs sem leyfileg prófgögn.
 - Notkun síma og annarra tækja er bönnuð í prófum og skal vera slökkt á þeim og þau höfð á prófstjóraborði ef þau eru meðferðis.
 - Nemendur skulu skilja prófblöð eftir á borðinu þegar þeir yfirgefa prófstofu.
 - Skólameistari getur vísað nemanda úr áfanga sem hefur rangt við í prófi samanber reglur um brottvikningu.
 - Nemandi hefur viku frá prófsýningardegi til að gera athugasemdir við kennara varðandi lokaeinkunn í áfanga.
 - Sætti nemandi sig ekki við niðurstöður kennara hvað varðar lokaeinkunn hefur hann 14 daga frá prófsýningardegi til að koma skriflegum athugasemdum um það til skólameistara.
 
Yfirfarið og breytt í nóvember 2015
Skólameistari