Pizzuboð í FAS
Það var margt um manninn á Nýtorgi í hádeginu en þangað hafði FAS boðið nemendum úr 10. bekk. Boð þetta er liður í að kynna bæði FAS og Nýheima. Það styttist í að nemendur í 10. bekk ljúki sinni grunnskólagöngu og þá er gott að vita hvað stendur til boða í okkar samfélagi þegar kemur að því að velja sér nýjan vettvang.
Skólameistari hélt tölu og sagði frá sinni reynslu af FAS en hann kom til starfa þann 1. nóvember síðstliðinn. Hann telur skólann vera í góðri stöðu og hugsi vel um fólkið sitt. Hann hefur mikinn samanburð af skólastarfi af höfuðborgarsvæðinu þar sem hans starfsvettvangur var áður en hann kom til okkar í FAS. Honum finnst mikil gæði í þessu nána lærdómssamfélagi þar sem nemendur hafa góðan aðgang að kennurum og reynt sé að koma til mótsvið þarfir hvers og eins. Og hann telur það einstakt að nemendur hafi svo góðan aðgang að kennurum sem raun ber vitni.
Eftir að hafa gætt sér á pizzunni fóru einhverjir í skoðunarferð með skólameistara á efri hæðina til að skoða skólastofurnar og aðstöðu nemenda. Víst er að gestirnir gengu saddir og sælir til baka eftir góðan málsverð.