Óflokkað

Páskalamb í boði FAS

Það er heldur betur farið að styttast í páskana. Páskafrí hefst hjá nemendum eftir kennslu á föstudag. Það verður eflaust kærkomið að leggja frá sér bækur og námsgögn í nokkra daga og fást við eitthvað annað. Eða bara slaka aðeins á í fríinu.

FAS bauð nemendum og starfsfólki í páskamáltíð í dag og að sjálfsögðu var það íslenskt lambalæri með tilheyrandi sem var á boðstólum. Að auki var boðið upp á gulrótarköku í eftirrétt.

Það þarf ekki að spyrja að því að fólk fjölmennti á Nýtorg og runnu veitingarnar ljúflega niður.

Eins og áður sagði hefst páskafrí að lokinni kennslu á föstudag. Kennsla hefst síðan aftur þriðjudaginn 7. apríl samkvæmt stundaskrá. Við vonum að allir eigi góða og gleðilega daga framundan.