Fréttir

Nemendaráð næsta vetrar

Í blíðunni í dag bauð nemendafélag FAS upp á grillaða hamborgara í hádeginu. Tilefnið var að sjálfsögðu að nýta góða veðrið en ekki síður að fulltrúar nemendaráðs þessa skólaárs hafa nú lokið störfum og vildu þakka samnemendum sínum fyrir veturinn. Þá var tækifærið notað til að kynna nemendaráð næsta vetrar. Þar ætlar Þorgerður María að taka að sér hlutverk forseta, Guðlaug verður varaforseti og Lilja Rós hagsmunafulltrúi hjá SÍF (Samband íslenskra framhaldsskólanema). Það verður spennandi að fylgjast með félagslífinu á næsta ári en við vitum öll mikilvægi þess að allir séu virkir til að félagslífið verði skemmtilegt.