Námsmatsdagur 6. febrúar
Þessa dagana þurfa margir nemendur að standa í skilum á vinnugögnum og jafnvel að taka próf. Ástæðan er að á næsta föstudag, 6. febrúar er komið að fyrri námsmatsdegi annarinnar og kennarar þurfa að hafa einhver gögn til að byggja námsmatið á.
Þegar matið er tilbúið verður það sett í Innu. Þar geta nemendur fengið þrjá stafi sem gefa vísbendingu um stöðuna. Stafurinn G stendur fyrir góðan árangur og þá telst nemandi í góðum málum. V stendur fyrir viðunandi og þá er árangurinn nokkuð í lagi en þó vel hægt að bæta sig. O stendur svo fyrir óviðunandi og þá þarf að grípa til aðgerða ef að nemandi ætli sér að standast áfangann. Auk stafanna þriggja skrifa kennarar umsögn sem gefur nánari vísbendingar um stöðuna. Gera má ráð fyrir að kennarar verði búnir að setja matið í Innu í lok vikunnar. Það er frí hjá nemendum á þessum fyrri námsmatsdegi.
Í næstu viku munu kennarar svo hitta nemendur sína einslega til að fara yfir stöðuna. Þessi samtöl hafa verið lengi við lýði í FAS og hafa fyrir löngu sýnt að gott er að fara stöðuna, bæði hvað varðar námið og eins ýmislegt annað sem er mikilvægt að kennarar viti.