Meira af starfsbraut í FAS

Það hefur verið nóg að gera á starfsbrautinni að undanförnu. Auk hefðbundis náms hefur verið farið í margar vettvangsferðir þar sem markmiðið er að nemendur kynnist umhverfinu og störfum á svæðinu.
Við höfum farið í heimsóknir í málningardeild Skinneyjar-Þinganess þar sem nemendur fengu fræðslu um fjölbreytt störf deildarinnar. Geitabúið á Háhól var heimsótt. Þar er reyndar alls konar búskapur. Auk geitanna eru þar nokkrir nautgripir og hungangsflugubú. Lovísa Rósa tók á móti okkur og sagði skemmtilega frá starfseminni.
Í þessum mánuði fengu strákarnir að skoða sjúkrabilinn og lærðu um þau tæki og tól sem eru nauðsynleg við fyrstu hjálp. Einnig um ábyrgðarmikið starf sjúkrabílstjóra sem þurfa mjög oft að vinna við krefjandi aðstæður.
Það var einnig farið á leikskólinnn Sjónarhól þar sem Elínborg aðstoðarleikskólastjóri tók á móti hópnum. Þar var farið yfir starfsvettvang á leikskóla og farið inn á deildir til að sjá starfið með eigin augum.
Eftir áramótin hefur töluverð áhersla á að kynnast nánasta umhverfi. T.d. var unnið verkefni þar sem sjónum var beint að eyjum í Hornafirði. Útkoman úr verkefninu var líkan af svæðinu. Einnig hefur verið horft yfir fjörðinn til jöklanna og þá sérstaklega skriðjöklanna sem blasa við frá Höfn.
Námi á þessu ári á starfsbraut lauk svo á heimsókn í hesthúsin við Stekkhól. Þar fengu nemendur fræðslu um íslenska hestinn og fóru á hestbak. Af framantöldu má sjá að það hefur verið mikið um að vera á starfsbraut í FAS.