Margt í gangi í FAS
Þessa vikuna er mikið um að vera í FAS. Seinni partinn í gær komu til okkar gestir frá bænum Beverungen í Þýsklandi. Þetta eru 13 krakkar sem dvelja hér þessa vikuna ásamt kennara sínum en hópurinn er í samstarfi við FAS þessa önnina.
Í morgun hófust opnir dagar í FAS og standa þeir yfir í þrjá daga og gestirnir okkar taka þátt í þeim. Þá eru námsbækur settar til hliðar og nemendur fást við ýmislegt annað. Dagarnir byrja allir á léttum morgunæfingum en svo tekur skipulögð dagskrá við. Eftir morgungrautinn tóku nemendur FAS ásamt 10. bekk þátt í dagskrá sem er undir hatti HeimaHafnar en gestirnir fóru í sögugöngu um Höfn þar sem Hulda okkar Laxdal leiddi hópinn. HeimaHöfn bauð upp á grillaða hamborgara í hádeginu og voru þeim gerð góð skil.
Eftir hádegi var haldið í íþróttahúsið og þar var keppt í „dodge“ bolta. Þar léku nemendur listir sínar og höfðu gaman saman. Í lokin fóru nokkrir nemendur í Vöruhúsið til að búa til snyrtibuddur en aðrir fóru í skólann til að spila, pússla eða bara spjalla.
Eftir að dagskrá lauk fóru íslensku og þýsku krakkarnir upp að Bergárfossi en landslagið er framandi fyrir gestina okkar.
Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum. Að þessu sinni er skýringartexti bæði á íslensku og þýsku.
- Gestirnir komu undir kvöld í FAS. Die Gäste kamen gegen 17 Uhr.
- Eftir matinn kynntu nemendur sig. Nach dem Essen stellten alle sich vor.
- Eftir matinn kynntu nemendur sig. Nach dem Essen stellten alle sich vor.
- Eftir matinn kynntu nemendur sig. Nach dem Essen stellten alle sich vor.
- Léttar æfingar. Leichte Übungen am Anfang des Tages.
- Léttar æfingar. Leichte Übungen am Anfang des Tages.
- Mannabingó. Human Bingo.
- Mannabingó. Human Bingo.
- Hraðstefnumót. Speed-Frieding.
- Hraðstefnumót. Speed-Friending.
- Morgungrauturinn. Haferbrei in der Pause.
- Gestirnir fóru í sögugöngu eftir morgunpásuna. Die Gäste machten einen Stadtrundgang nach der Pause.
- Eitt af elstu húsunum á Höfn. Das älteste Haus im Dorf.
- Hjá íshúsinu. Vor dem Eishaus.
- Í verbúðinni. In der Barracke.
- Eldhúsið verbúðinni. Die Küche in der Barracke.
- Bjartur var með viðburð fyrir nemendur FAS og 10. bekk. Die isländischen Schüler hatten eine lustige Vorlesung.
- Bjartur var með viðburð fyrir nemendur FAS og 10. bekk. Die isländischen Schüler hatten eine lustige Vorlesung.
- Pása á bókasafninu. Ruhepause in der Bibliothek.
- Dodgebolti í íþróttahúsinu. Dodgeball wurde gespielt.
- Dodgebolti í íþróttahúsinu. Dodgeball wurde gespielt.
- Hópmynd hjá Bergárfossi. Die Gruppe beim Wasserfall Bergárfoss.
- Íslenski hluti hópsins. Die Isländer in der Gruppe.






















