Óflokkað

Kærleikurinn er mikilvægur

Marsmánuður er oft notaður til vitundarvakningar um ýmis málefni. Hér á Hornafirði hefur þessi mánuður verið notaður til þess að vekja athygli á fjölbreytileika samfélagsins því við erum jú alls konar. Það er margt sem felst í fjölbreytileikanum og eitt af því er að sýna umburðarlyndi og kærleika. Það er margt um að vera í sveitarfélaginu í þessum mánuði. Mánudaginn verður til dæmis opið fræðsluerindi um mátt tilfinninganna. Þetta erindi verður í Vöruhúsinu á milli 16:30 og 18:00 og eru allir velkomnir.

Í næstu viku verða opnir dagar í FAS en þá eru námsgögn sett til hliðar í nokkra daga og nemendur fást við ýmislegt annað. Dagskrá fyrir opna daga er fjölbreytt en við ætlum að veita kærleiknum sérstaka athygli og í lok vikunnar mun kærleiksmeistari FAS verða krýndur. Við fáum einnig  heimsókn frá samstarfsskóla í Þýskalandi í næstu viku og munu gestirnir taka þátt í opnum dögum. .

Þegar starfsfólk í FAS mætti til vinnu í morgun beið þeirra glaðningur á vinnuborðunum. Með þessu vill skólinn benda á mikilvægi kærleikans og um leið sýna starfsfólki sínu þakklæti og hlýju.