GRAFFÍLL listahátíð á Höfn

GRAFFÍLL listahátíð unga fólksins verður haldin á Hornafirði 18. – 20. júli. Þetta er afrakstur vinnu nemenda í áfanga sem heitir Hönnun og frumkvöðlafræði og var nú á vorönninni kenndur í annað sinn í FAS. Í áfanganum fæddist sú hugmynd að skapa og skipuleggja listahátið fyrir ungt fólk. Nemendur skipulögðu hátíðina frá a-ö, útbjuggu heimasíðu, lógó og unnu kostnaðaráætlun. Þá var sótt um styrki til að hugmyndin gæti orðið að veruleika.
Á fundi hjá bæjarráði Hornafjarðar fyrr í vikunni var umsóknin tekin fyrir og samþykkt. Verkefnið fær 2,5 milljónir í styrk frá sveitarfélaginu og að auki mun starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar standa að uppsetningu hátíðarinnar í samvinnu við nemendur. Áður hafði SASS (Samband sunnlenskra sveitarfélaga) styrkt verkefnið um 250.000.
Þetta finnst okkur í FAS frábærar fréttir og erum mjög stolt af okkar fólki og þeirra frumkvæði í þágu lista og menningar. Það verður spennandi að fylgjast með þessu verkefni.