Óflokkað

Gott geð er gulli betra

Við þekkjum það öll að andleg líðan okkar getur verið mismunandi. Stundum er allt í góðu en stundum verða líka áskoranir á vegi okkar sem þarf að glíma við. Ef eitthvað bjátar á getur verið gott að vita hvaða leiðir eru mögulegar til að færa málin til betri vegar.

Af þessu tilefni stendur velferðarsvið sveitarfélagsins fyrir viðburði í dag sem kallast „Gott geð“ og er þetta liður í að vera partur af þeim fjölbreytileika sem er að finna í sveitarfélaginu. Hingað eru komnir þrír aðilar til að fjalla um ýmsar áskoranir sem verða á vegi okkar og kynna leiðir hvar hægt sé að leita sér hjálpar. Þetta eru þau Elín Vigdís Guðmundsdóttir sem kemur frá Samtökum um átröskun og tengdar raskanir, Freymar Marínósson sem kynnti starfsemi Trausts kjarna en það eru samtök sem vinna að samfélagsbreytingum með því að efla jafningjafræðslu innan heilbrigðisgeirans. Nína Eck félagsráðgjafi starfar sem leiðtogi jafningja á Landsspítala. Öll hafa þau persónulega reynslu sem þau hafa þurft að vinna úr.

Fyrir hádegi héldu þau kynningar fyrir nemendur og starfsfólk FAS og var bæði gaman og gagnlegt að hlusta á erindi þeirra. Eftir hádegi stendur sveitarfélagið fyrir viðburði í Nýheimum þar sem almenningi er boðið að koma að hlýða á erindi þeirra. Á milli atriða sjá Spagettibandið og Spírall um tónlistaratriði.

Við þökkum gestunum kærlega fyrir komuna. Þetta er bæði þarft og gagnlegt fyrir alla að kynna sér.