Fréttir af starfsbraut FAS
Það hefur verið nóg að gera á þessari önn á starfsbrautinni. Auk fastra greina á starfsbraut hafa einhverjir nemendur verið að taka aðrar námsgreinar sem okkur finnst frábært.
Nýtt á þessari önn er áfangi í hönnun og er hann kenndur í Vöruhúsinu. Í upphafi var farið yfir hvað felst í orðinu hönnun og hvað er hægt að hanna. Hópurinn fór á Svavarssafn og skoðaði sýninguna Nytjar þar sem má sjá alls kyns hönnun og list.
Nemendur fengu frjálst val um það hvað þeir vildu gera og nú er bæði verið að vinna í saumum og smíðum. Fyrst var að fá hugmynd sem þurfti að teikna upp og útfæra. Það fer svo eftir viðfangsefni hvernig vinnan þróast áfram en markmiðið er að í lok annar verði verkefnin tilbúin. Það er gaman að fylgja nemendum og sjá áhuga þeirra og ekki síður síður hvernig hugmynd verður að veruleika.
Hér má sjá nokkrar myndir frá hönnunartímum á önninni.