FAS eftir grunnskóla er góður kostur
Nú styttist óðum í það að nemendur í 10. bekk ljúki grunnskólagöngunni og það þýðir líka fyrir flesta að þá þarf að fara að huga að næstu skrefum. Af þessu tilefni var nemendum í 10. bekk í Heppuskóla boðið í heimsókn í FAS í dag. Það var Fríður námsráðgjafi sem tók á móti hópnum og henni til aðstoðar voru þær Birta Ósk, Guðlaug og Karitas Björg. Það var farið yfir það hvaða möguleikar eru á námsframboði í skólanum, hvaða þjónusta stendur nemendum til boða og hvernig félagslífi nemenda er háttað. Síðast en ekki síst var nemendum sagt frá því sem er einkennandi fyrir þennan skóla eins og t.d vísindadagar, uppbrot, erlent samstarf og opnir dagar. Að því loknu var gengið með nemendur í smærri hópum inn í kennslustundir sem voru í gangi og aðstaða í öllum skólanum skoðuð.
Skólinn bauð upp á pizzu í hádeginu, bæði fyrir gestina og aðra sem vinna og starfa í FAS. Eftir matinn sá Kristján áfangastjóri um létta spurningakeppni þar sem gestirnir öttu kappi við nemendur FAS. Það var lið FAS sem stóð uppi sem sigurvegari í þeirri viðureign.
Klukkan 17 í dag er foreldrum og aðstandendum nemenda í 10. bekk boðið á sambærilega kynningu á námsframboði og starfsemi skólans. Við vonum að flestir sjái sér fært að mæta þangað þó veður sé núna fremur rysjótt.
Mikið væri gaman að sjá sem flesta úr hópi 10. bekkinga í námi hjá okkur í FAS í haust.
Hér má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni í dag.