Óflokkað

FAS á ferð og flugi

Alþjóðlegt samstarf hefur lengi verið ríkur hluti af starfi FAS og í gegnum tíðina hefur fjöldinn allur tekið þátt í alls kyns verkefnum. Þar má nefna Comeníusarverkefni, Erasmus+ verkefni, Nordplus verkefni og olíuleit. Áherslan á erlend verkefni er til að gefa þeim sem vilja tækifæri til að ferðast og kynnast nýju landi og menningu þess. Og um leið að víkka sjóndeildarhringinn. Þegar nemendur fá tækifæri til að búa inni á heimili í öðru landi í einhverja daga kynnast þeir landi og þjóð á annan hátt en sem venjulegir ferðamenn.

Á þessu skólaári er FAS í samstarfi við Gymnasium Beverungen í bænum Beverungen í Þýskalandi. Þrettán nemendur og einn kennari voru hér í síðustu viku og áttu góðar stundir með okkar nemendum í FAS. Þau héldu alsæl heim um síðustu helgi eftir góða daga. Um miðjan maí munu svo sjö nemendur í FAS endurgjalda ferðina. Það er Hjördís kennari sem hefur haldið að mestu utan um erlent samstarf í FAS í rúmlega 25 ár en ætlar eftir þessa önn að láta staðar numið á þeim vettvangi.

Nú eru að verða breytingar í FAS og Ragnheiður Hrafnkelsdóttir mun taka við að halda utan um erlent samstarf þar sem markmiðið að allir nemendur skólans sem þess óska eigi kost á því að fara í utanlandsferð á vegum skólans. Þetta geta verið nemendaskiptaverkefni, heimsóknir til að skoða skóla eða þá til að kynnast ákveðnum námsgreinum og menningu viðkomandi lands. Verið er að endurnýja Erasmus+ aðild skólans sem gefur ótal möguleika og opnar nemendum dyr að spennandi tækifærum.

Á næsta skólaári er áformað að þeir staðnemendur FAS sem það vilja fari í ferð til Danmerkur. Meira um það síðar.

Meðfylgjandi mynd var tekin við Jökulsárlón um síðustu helgi þegar gestirnir frá Þýskalandi skoðuðu þessa einstöku náttúruperlu.