Áfram halda opnir dagar í FAS

Í dag var áfram haldið með dagskrá opinna daga. Líkt og í gær var margt og mikið á boðstólum. Dagurinn hófst á morgunleikfimi á Nýtorgi og að því loknu var snyrtivörunámskeið þar sem þátttakendur voru m.a. að búa til andlitsmaska. Á sama tíma var haldið borðtennismót í Þrykkjunni. Eftir morgungrautinn var komið að spurningakeppni á milli kennara og nemenda og það voru kennarar sem báru sigur úr býtum.
Margt annað var á dagskrá í dag. Stelpurnar í Fókus voru með kynningu og þá kynnti Andrea Sól skiptinám en hún er nýlega komin eftir rúmlega 10 mánaða dvöl í Japan. Þá var möguleiki að eiga kaffispjall með Barða á kennarastofunni, boðið var upp á yndislestur á bókasafninu og einnig var hægt að taka þar í spil. Einhverjir völdu að spila badminton í íþróttahúsinu, aðrir fóru á crossfit-æfingu og nokkrir fengu prófa nýja golfherminn í golfskálanum.
Í lok dags var svo efnt til vöfflusamsætis á Nýtorgi. Þar runnu nýbakaðar vöfflur ljúflega niður og allir héldu saddir og sælir heim eftir daginn.
- Morgunleikfimi.
- Morgunleikfimi.
- Snyrtivörunámskeið.
- Snyrtivörunámskeið.
- Spurningakeppni á milli nemenda og kennara.
- Flott úrslit.
- Stelpurnar í Fókus með kynningu.
- Badminton í íþróttahúsinu.
- Í golfherminum.
- Í golfherminum.
- Í golfherminum.
- Vöfflubakstur.
- Vöfflubakstur.
- Svo þarf að þeyta rjómann.
- Í tíma hjá Fenri.
- Í tíma hjá Fenri.
- Í tíma hjá Fenri.
- Í tíma hjá Fenri.