Fín ferð til Þýskalands
Þriðjudaginn 19. maí hófst dagskráin á sameiginlegri vinnu í skólanum. Nú höfðu 10 nemendur frá Ítalíu bæst í hópinn ásamt tveimur kennurum og einnig fleiri þýskir krakkar. Í heildina taldi hópurinn ríflega 40 manns. Í byrjun var unnið í dágóða stund með að fá nemendur til að kynnast og gekk það ljómandi vel. Næst voru svo kynningar okkar nemenda sem þær höfðu undirbúið heima þar sem var verið að kynna land og þjóð. Það gekk mjög vel og annar ítölsku kennaranna hafði á orði að það væri líkast að vera í kvikmyndaveri að sjá myndir af okkar fallega og fjölbreytta landslagi og fá að vita meira um landið. Eftir kynningarnar var haldið til Paderborn sem er mikil háskólaborg. Borgin er líka þekkt fyrir sögulega dómkirkju frá 13. öld og um 200 uppsprettur í hjarta borgarinnar sem mynda ána Pader. Einhverjir skoðuðu dómkirkjuna á meðan aðrir röltu um og kíktu jafnvel í búðir. Um kvöldið hafði verið ákveðið að nemendur myndu borða hjá gestafjölskyldunum.
Á miðvikudeginum var lagt snemma af stað áleiðis til bæjar sem heitir Trendelburg en þar átti að hefja ferð á kanóum þar sem átti að sigla eftir ánni Diemel. Það átti að sigla eftir ánni á 10 kanóum til Wülmersen sem er sögulegt kastalasetur frá 12. öld og þar er margar gamlar byggingar að finna. Líklega hefði mátt undirbúa þessa ferð betur og kannski áttuðu þjónustuaðilarnir sig ekki á því að margir nemendanna voru að fara í fyrsta skipti á kanóa. Áin er ekki mjög djúp en sums staðar nokkur straumur í henni. Flestir komust alla leið en einhverjir veltu bátunum og lentu úti í ánni. Það var því mjög mismunandi upplifun af þessari ferð í þessum 40 manna hópi. Veðrið var líka mjög misjafnt á leiðinni því miklar rigningardembur gengu yfir. Langflestir voru því holdvotir þegar komið var til Wülmersen og þá var ágætt að fá heita linsubaunasúpu sem er vinsæl á þessum slóðum. Rútan hafði lagt á til þess gerðu bílastæði og við hliðina á því var gerði þar sem mátti sjá fjöldann af strútum og jafnvel hægt að kaupa strútsegg. Eftir ferðina var frjáls tími fram að kvöldmat. Nú hittust allir á veitingastað sem heitir Strandgut Höxter og liggur við fallegt stöðuvatn. Þar var boðið upp á hamborgarahlaðborð og allir áttu þar notalega stund saman. Þetta var líka síðasta samverustundin í þessari ferð.
Ferðin heim til Íslands hófst snemma á fimmtudegi þar sem við hittumst í skólanum klukkan hálf sjö. Þar beið okkar lítil rúta sem flutti okkur á lestarstöðina í Kassel-Wilhelmshöhe. Þaðan gátum við tekið lest sem fór beint á flugvöllinn í Frankfurt og gekk ferðin þangað ljómandi vel. En mikið finnst okkur flugvöllurinn í Frankfurt stór og mannfjöldinn eftir því. Fluginu okkar heim til Íslands seinkaði nokkuð. Vélin sem hafði komið út var með mikið af ferskum fiski og því hafði henni verið lagt langt frá þar sem hentaði að taka fiskinn frá borði. Við fórum um borð í rútu í flugstöðinni sem keyrði okkur í flugvélina og okkur fannst sú ferð aldrei ætla að enda. Þegar við loksins komust í flugvélina þurftum við að bíða í tæpan klukkutíma áður en við komust í loftið. Þegar heim var komið þurfti að ná í bílaleigubíl til að komast austur og þá tók við enn meiri bið. Það voru mjög margir að ná í bílaleigubíla og það tók drjúga stund að fá afgreiðslu og enn meiri tíma þangað til að bíllinn var tilbúinn. En eftir að við komumst af stað gekk ferðin ljómandi vel. Það var þreyttur en ánægður hópur sem kom til Hafnar síðastliðna nótt. Það var ekki annað í boði en að drífa sig heim því í hópnum eru nemendur sem eru að útskrifast sem stúdentar frá FAS á morgun.
- Í skólanum.
- Í skólanum.
- Kynning um Ísland.
- Kynning um sveitarfélagið.
- Kynning um FAS.
- Paderborn.
- Paderborn.
- Paderborn.
- Paderborn.
- Paderborn.
- Inni í dómkirkjunni í Paderborn.
- Inni í dómkirkjunni í Paderborn.
- Inni í dómkirkjunni í Paderborn.
- Hópurinn frá Íslandi, Ítalíu og Þýskalandi.
- Ein af uppsprettum Pader.
- Alls staðar mátti sjá vindmyllur.
- Upphafsstaðurinn fyrir kanóaferðina.
- Kanóaútgerðin.
- Ferðin undirbúin.
- Ferðin undirbúin.
- Ferðin undirbúin.
- Ferðin undirbúin.
- Áin Diemel.
- Það eru margar fallegar byggingar í Wülmersen.
- Það eru margar fallegar byggingar í Wülmersen.
- Það eru margar fallegar byggingar í Wülmersen.
- Þessi snigill lét fara vel um sig.
- Wülmersen.
- Frekar blautir ferðalangar.
- Frekar blautir ferðalangar.
- Linsubaunasúpa í Wülmersen.
- Linsubaunasúpa í Wülmersen.
- Þessir strútar voru rétt hjá rútustæðinu.
- Okkar fólk skoðar strútana.
- Mætt á Strandgut Höxter veitingastaðinn.
- Strandgut Höxter.
- Þessi fallegi regnbogi myndaðist yfir vatninu.
- Nú liggur leiðin heim.






































