Óflokkað

Fréttir frá Þýskalandi

Síðastliðinn föstudag lögðu sjö nemendur ásamt tveimur kennurum af stað áleiðis til Beverungen í Þýskalandi. Þar er ætlunin að heimsækja nokkra nemendur í Gymnasium Beverungen og um leið að endurgjalda heimsókn nemendahóps frá skólanum í mars.

Fyrsti áfangastaður var í Keflavík þar sem var gist nóttina fyrir flug til Frankfurt. Sá flugvöllur er með þeim stærstu í Evrópu og þar er ótrúlega auðvelt að villast og það tókst okkur. Það eru nefnilega nokkrir salir þar sem á að sækja farangur og við fórum í sal D í staðinn fyrir sal E og það var auðvitað vesen. Það gekk þó um síðir að komast í sal E og mikil var gleðin að sjá töskurnar okkar standa þar og bíða eftir okkur.

Við þurftum að taka lest frá flugstöðinni á járnbrautarstöðina fyrir flugvöllinn. Þar þurftum við að finna lest á aðaljárnbrautarstöðina í Frankfurt og skipta þar um lest. Nú var förinni heitið til borgar sem heitir Kassel-Wilhelmshöhe og þangað var náð í okkur. Það var kærkomið fyrir hópinn að komast loks á áfangstað um kvöldmatarleytið á laugardegi.

Sunnudagurinn var frjáls dagur með gestafjölskyldunum og þýsku krökkunum sem komu til Íslands. Krakkarnir hittust og skoðuðu Beverungen og seinni partinn fóru allir í keilu.

Í morgun hittust svo allir í skólanum. Fyrir hádegi var verkefnavinna þar sem var verið að skoða heimsmarkmiðin og sjónum sérstaklega beint að heimsmarkmiði sem fjallar um hreint vatn og hreinlæti.

Eftir hádegi fórum við að skoða bóndabæ í Manrode þar sem er verið að rækta lamadýr. Við fengum heilmikla fræðslu um lamadýr og það var gaman að skoða þessi dýr. Þau vildu þó lítið við okkur tala en það er víst eðli þeirra. Eftir heimsóknina fóru krakkarnir til Höxter sem er bær rétt hjá Beverungen.

Þó við höfum ekki verið lengi er ótrúlega margt að sjá. Við tökum sérstaklega eftir því að hér er mikið verið að framleiða orku á vistvænan hátt og við sjáum mikið af vindmyllum og einnig eru margir með sólarsellur.