Óflokkað

Morgunmatur til heiðurs útskriftarefnum

Það er löngu orðin hefð fyrir því í FAS að skólinn bjóði væntanlegum útskriftarefnum til morgunverðar áður en kennslu lýkur. Útskriftarefnin eru með fæsta móti að þessu sinni og einunigs tveir staðnemendur sem mættu í morgunmatinn í morgun. Hún Sigrún okkar reiddi fram dýrindis kræsingar að venju og voru þeim gerð góð skil.

Í dag er síðasti kennsludagur og nú taka við lokamatsspjöll milli nemenda og kennara þar sem verður farið yfir hvað hefur áunnist í vetur.

Við óskum öllum góðs gengis á þessum síðustu dögum annarinnar.