Óflokkað

Starfskynningar á vegum HeimaHafnar

Margir í hópi unglinganna okkar vita ekki hvert á að stefna að loknu námi en hafa þó áttað sig á að það er mikilvægt að stefna að frekara námi. Í mörg ár hafa verið haldnar starfskynningar í grunnskólum bæði til að kynna störf og eins til að auðvelda unga fólkinu hvert skal stefna. Nemendur fá jafnvel að prófa að spreyta sig á ákveðnum störfum og það skýrir málin fyrir einhverja og auðveldar ákvarðanir.

Það eru líklega fáir sem átta sig á hversu mörg og fjölbreytt störf eru innt af hendi í sveitarfélaginu okkar og í dag sá HeimaHöfn um að kynna nokkur þeirra. Kynningarnar fóru fram á Heppu og var nemendum úr 10. bekk og nemendum FAS boðið. Ekki spillti fyrir að boðið var upp á hádegismat og voru m.a. gómsætir dólgar og hinir vinsælu kjúklingabitar Heppunnar í boði.

Það var Nejra Mesetovic sem hafði veg og vanda að kynningunni og stjórnaði af röggsemi. Meðal þess sem var kynnt voru störf bæjarstjórnarfulltrúa, dýralækna, ljósmæðra, bókhaldara, lögfræðinga og tækniteiknara. Kynningarnar voru í höndum þeirra sem vinna þessi störf. Þar var farið yfir í hverju námið felst, hver undirbúningurinn þarf að vera og hvaða möguleika menn hafa að loknu náminu. Þetta voru flottar og fræðandi kynningar og vonandi auðvelda þær einhverjum hvert skal stefna. Eftir kynningarnar var síðan haldin Kahoot spurningakeppni þar sem spurningarnar tengdust kynningunum. Þar stóð Gabriela uppi sem sigurvegari, Emilía Ósk var í öðru sæti og Karitas Björg í því þriðja. Allar fengu þær gjafabréf fyrir veitingum frá veitingastöðum á svæðinu.

Það er gaman að sjá hversu margir úr hópi þeirra sem voru að kynna eða starfsmenn sem komu með nemendum hafa verið í námi í FAS. Það er svo mikilvægt að hafa aðgang að námi á framhaldsskólastigi í heimabyggð og að námsframboð sé sem fjölbreyttast til að koma til móts við sem flesta.

Hér má sjá nokkrar myndir frá kynningunni í dag.