Foreldrafélag FAS stendur fyrir skíðaferð
Það eiga að starfa foreldrafélög við alla framhaldsskóla og svo er einnig í FAS. Það er gaman að sjá hve áhugasamt og öflugt foreldrafélag FAS er í vetur en þau eru tilbúin að styðja við og styrkja starf skólans eftir bestu getu. Fyrr á skólaárinu hittu forsvarsmenn foreldafélagsins nemendur til að kanna hug þeirra. Þá kom í ljós að það var mikill áhugi á því að fara í skíðaferðalag.
Foreldrafélagið ætlar að verða við þeirri ósk og hefur nú skipulagt ferð sem verður farin 17. og 18. apríl. Í dag var sendur tölvupóstur til nemenda og foreldra með upplýsingum um ferðina. Þeir sem hafa hug á því að fara þurfa að skrá sig í síðasta lagi miðvikudaginn 25. mars á eyðublaði sem fylgir í póstinum.
Það er nokkur kostnaður sem fylgir því að fara í svona ferðalag en til að draga sem mest úr kostnaði styrkir FAS ferðina um 250.000 krónur. Þá mun fyrirtækið Glacier Travel útvega bíl og ökumann gjaldfrjálst svo hægt verði að halda verðinu í algeru lágmarki. Við þökkum kærlega fyrir þennan stuðning.
Það eru þau Vigfús og Fjóla sem ætla að fylgja hópnum í ferðina en myndu gjarnan þiggja að einhver með skíðareynslu myndi slást í hópinn.
Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga útivist og hafa gaman saman að slá til og skella sér á skíði.
Meðfylgjandi mynd var tekin í dag í FAS þegar Fjóla hitti skólameistara og áfangastjóra til að skipuleggja ferðina.