Seinna vörðumat og val
Áfram flýgur tíminn og í lok þessarar viku er komið að seinna vörðumati. Þá munu kennarar setja inn mat sem birtist í Innu. Líkt og áður eru það stafirnir G, V og O sem segja hver staðan er. Ef nemandi fær O í einhverjum áfanga er það vísbending um að það þurfi að taka sig á ef það er ætlunin að standast áfangann.
Þá er líka búið að opna fyrir val á haustönninni. Staðnemendur þurfa að velja fyrir páskafríið sem hefst í lok næstu viku. Sama gildir fyrir fjarnemendur. Það er því góður tími núna til að velta fyrir sér hvaða áfanga á að velja fyrir haustönnina. Hér er hægt að sjá námsframboð skólans næstu ár. Í næstu viku munu umsjónarkennarar hitta nemendur sína og fara yfir stöðuna og aðstoða við val.