Óflokkað

Skemmtileg vika og flott árshátíð

Síðasti opni dagurinn hófst eins og venjulega á morgunæfingum. Það var ýmislegt í boði sem nemendur gátu valið um. Þar má nefna Crossfit, badminton, gönguferð með Mikka, æfingar í golfhermi, sælgætisgerð, kynningu á bandvefslosun, spjall á kennarastofunni eða þá bara að spjalla yfir spilum eða púsli. Opnum dögum lauk svo með mati nemenda á því hvernig til tókst. Þýsku gestirnir okkar völdu sér viðfangsefni eftir áhuga en þeir hafa blandast íslensku nemendunum ágætlega.

Árshátíð FAS gekk ljómandi vel. Borðhaldið var á Heppunni og matnum voru gerð góð skil. Eftir skemmtiatriði var haldið í Sindrabæ þar sem hljómsveitin Ær og kýr hélt uppi fjörinu.

Skólahald hófst svo með hefðbundnum hætti í morgun. Gestirnir okkar fóru í heimsókn í Skinney-Þinganes. Þar fengu þeir að kynnast fyrirtækinu bæði með því að fá kynningu og eins með því að ganga um vinnslusalina. Eftir hádegi var svo haldið inn að Hoffellsjökli með viðkomu í reiðhöllinni til að skoða hesta. Það var vindasamt inni við jökul en það gerði upplifun gestanna enn meiri því þeir gátu varla staðið kyrrir á jökulruðningunum. Landslagið við jökulinn er alltaf óviðjafnanlegt.

Gestunum var boðið í pizzahlaðborð á Heppunni og þar var síðasta samveran í bili. Þeir halda af stað í fyrramálið áleiðis til Keflavíkur og fljúga utan á sunnudagsmorgun. Annasöm en skemmtileg vika er að baki og íslenski hópurinn er strax farinn að hlakka til að endurgjalda heimsóknina í maí.

Hér má sjá nokkrar myndir frá fimmtudegi og föstudegi. Eins og áður í þessari viku er myndatexti á íslensku og þýsku.