Áfram halda opnir dagar
Líkt og í gær var nóg um að vera í FAS. Eftir léttar morgunæfingar var komið að því að eiga notalega stund á bókasafninu. Einhverjir völdu þó að spila tölvuleik. Það er orðinn fastur liður á opnum dögum að nemendur og kennarar reyni með sér í spurningakeppni. Fullltrúar kennara voru Barði, Hlíf og Jóhann Bergur og mættu þau Gettu betur liði FAS. Það voru kennarar sem báru sigur úr býtum og fengu 17 stig en nemendur 9. Það eru engin verðlaun í þessari keppni en aðalmálið er að hafa gaman saman.
Eftir graut var komið að því að spila Hornafjarðarmanna og það var sjálfur útbreiðslustjórinn Albert Eymundsson sem stjórnaði spilinu af sinni alkunnu snilld. Í upphafi var spilað á 10 borðum. Það var nokkur áskorun að þessu sinni því gestirnir frá Þýskalandi tóku þátt og voru að læra spilið. Eftir nokkur spil komust níu efstu í undanúrslit og efsti á hverju borði síðan í úrslit. Þar stóð Þorgerður María uppi sem sigurvegari, Lilja Rós var í öðru sæti og einn af gestunum, Lorenz Wehrmann, varð í þriðja sæti. Verðlaun að þessu sinni komu frá Hafnarbúðinni en hingað komu Olsenbræður sem einnig eru fyrrum nemendur okkar og færðu okkur gjafabréf upp á góðmeti.
Eftir hádegi kom Óli Örn Atlason frá Rannís og sagði frá möguleikum og styrkjum frá Erasmus+ og og fóru allmargir til að kynna sér það. Gestirnir kynntu land sitt, svæðið sitt og skólann. Það verður gaman fyrir íslenska hópinn að fara til Beverungen síðar á önninni og upplifa land og menningu.
Í lok dags fóru einhverjir til að halda áfram að búa til snyrtibuddur í Vöruhúsinu, einhverjir hálpuðu til við að undirbúa vöfflukaffi og enn aðrir styttu sér stundir við spil og spjall.
Eftir að hafa gætt sér á vöfflum var haldið á Stokksnes. Þar var farið út á klettana og mátti sjá seli svamla í sjónum. Næsta stopp var við sandöldurnar þar sem gestirnir hlupu alla leið niður að sjó. Síðasta stopp var síðan í víkingaþorpinu. Eins og alltaf er landslagið og umhverfið allt stórbrotið. Gestirnir eiga vart orð til að lýsa hrifningu sinni á svæðinu.
Líkt og í gær er myndatexti á íslensku og þýsku.
- Eins og áður hófsta dagurinn á léttum æfingum. Leichte Übungen am Anfang des Tages.
- Kristján áfangastjóri stjórnar opnum dögum af röggsemi. Kristján, der Leiter der offenen Tage.
- Spurningakeppni, kennarar mæta nemendum. Quiz Lehrer gegen Schüler.
- Spurningakeppni, kennarar mæta nemendum. Quiz Lehrer gegen Schüler
- Kennarar báru sigur úr býtum. Die Lehrer haben gewonnen.
- Það var alls konar afþreying í gangi. Das Schulleben vormittags.

- Nú var komið að Hornafjarðarmanna. Jetzt gab es ein Kartenspiel.
- Margir voru að læra spilið. Die meisten haben das Spiel jetzt gelernt.
- Einn gestanna komst í úrslit og fékk verðlaun. Einer der Gäste schaffte es ins Finale und erhielt einen Preis.
- Vinningshafarnir með Albert og Hjördísi. Die Gewinner mit Albert und Hjördís.
- Hádegismaturinn. Das Mittagessen.
- Hádegismaturinn. Das Mittagessen.
- Kynning á Erasmus+. Einführung in Erasmus+.
- Eftir hádegið kynntu gestirnir land sitt og þjóð. Am Nachmittag stellten die Gäste ihr Land und ihre Bevölkerung vor.

- Það var alls konar afþreying í gangi. Das Schulleben.
- Það var alls konar afþreying í gangi. Das Schulleben.
- Hér er verið að undirbúa árshátíð. Hier wird das jährliche Festival vorbereitet.
- Vöfflukaffi klikkar ekki. Waffeln sind immer lecker.
- Vöfflukaffi klikkar ekki. Waffeln sind immer lecker.
- Næst lá leiðin út á Stokksnes. Als nächstes ging es nach Stokksnes.
- Það er alltaf hægt að taka hópmyndir. Man kann jederzeit Gruppenfotos machen.
- Það er alltaf hægt að taka hópmyndir. Man kann jederzeit Gruppenfotos machen.
- Í víkingaþorpinu. Im Wikingerdorf.