Óflokkað

Íslenskunámið gengur vel

Eins og flestir vita er mikill fjöldi íbúa á landinu sem ekki hefur íslensku sem móðurmál. Þessa aðila má finna alls staðar í samfélaginu og eru mikilvægir til að halda landinu gangandi. Það hefur verið vaxandi þörf á íslenskunámi fyrir nýbúana okkar. Þeir sem eru á skólaaldri fá íslenskunám inni í skólunum en minna hefur farið fyrir íslenskunámi fyrir þá sem starfa í atvinnulífinu. Í FAS var ákveðið að bregðast við og núna eftir áramótin hófst kennsla í FAS í „íslensku sem öðru máli“ í fjarnámi.

Miðað við viðtökur hér í FAS er greinilegt að það er mikill áhugi á því að tileinka sér íslenskuna. Það eru hátt í fjörtíu manns sem skráðu sig í námið sem okkur finnst frábært. Það eru tveir kennarar sem halda utan um námið. Annars vegar er það Sigríður Kristinsdóttir sem heldur utan um námsefnið og hins vegar Lína Dóra Hannesdóttir sem sér um talþjálfun og annað utanumhald í FAS. Nemendur eru staðsettir vítt og breitt um landið en þeir sem geta eiga þess kost að koma reglulega í talþjálfun sem bæði fer fram á netinu og í skólastofu í FAS.

Hingað til hefur allt gengið ljómandi vel, nemendur eru áhugasamir og það er mikill vilji til að læra málið. Það er einnig gaman er að segja frá því að FAS hefur fengið aðgang að „Baratala“ sem er frábær viðbót við íslenskunámið og er  víða notað í samfélaginu. „Baratala“ er forrit með almennum náms- og starfstengdum orðaforða, hlustunarfærni og þjálfar aðflutta í að tala íslensku. Þetta forrit er notað af fjölda fyrirtækja og stofnana á Íslandi.

Það er von okkar að kennsla í „íslensku sem öðru máli“ sé komið til að vera í FAS. Við höfum séð að það er afar mikilvægt að nýbúarnir okkar nái tökum á tungumálinu því það auðveldar þeim að komast inn í samfélagið og það er einmitt það sem við viljum.

Meðfylgjandi mynd var tekin í talþjálfunartíma í FAS í dag.