Óflokkað

Grunnteikning í FAS

Einn þeirra áfanga sem er kenndur á þessari önn í FAS er grunnteikning. Það eru orðin nokkur ár síðan þessi áfangi var síðast í boði og það gleður okkur að hann sé aftur orðinn hluti af námsframboði skólans.

Grunnteikning er mjög mikilvæg fyrir alla þá sem ætla sér í nám í iðn- og hönnunargreinum. Í áfanganum er farið í grunnatriði vinnuteikninga, mest er unnið með fallmyndun, fríhendisteikningar og þrívíddarteikningar. Núna eru 12 nemendur skráðir, þar af eru tveir úr atvinnulífinu sem starfa við smíðar og tveir nemendur koma úr grunnskólanum. Okkur finnst frábært að sjá þennan fjölbreytta hóp sameinast í skólastofunni.

Önnin hefur farið vel af stað. Nemendur eru áhugasamir og vinna vel. Meðfylgjandi mynd var tekin í tíma í dag.