Jólafrí og upphaf vorannar
Skólastarfi haustannarinnar lýkur formlega í dag með uppgjörsfundum hjá kennurum og starfsfólki. Allar einkunnir eiga nú að vera komnar í INNU og geta nemendur skoðað stöðuna þar. Jólafrí hefst formlega í dag og er það örugglega kærkomið hjá flestum.
Skólastarf vorannar hjá nemendum hefst þriðjudaginn 6. janúar klukkan 8:30 en þá eiga þeir að mæta hjá umsjónarkennurum sínum. Klukkan 9:00 verður kennt eftir hraðtöflu þar sem verður farið yfir skipulag annarinnar í hverjum áfanga. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7. janúar.
Starfsfólk FAS sendir nemendum sínum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og vonar að nýtt ár verði farsælt og gefandi.