Mikið fjör í FAS í dag

Það er mikið um að vera hjá væntanlegum útskriftarnemendum í FAS í dag. Það er síðasti kennsludagur annarinnar og útskriftarefni nota hann til að kveðja skólann sinn. Af því tilefni „skreyttu“ þau skólann eftir eigin höfði og voru klædd eins og mörgæsir. Hjá einhverjum kennurum beið smáglaðningur þegar þeir fóru úr húsi í morgun. Hópurinn sem útskrifast núna er þó töluvert stærri því það eru alltaf einhverjir sem ekki vilja dimmitera auk þess sem nokkrir fjarnemendur eru að útskrifast.
Það er hefð í FAS til margra ára að væntanlegir útskriftarnemendur og kennarar borði saman morgunverð og á því var engin undantekning í morgun. Þar var margt skrafað og rifjað upp frá skólagöngunni sem senn lýkur. Eftir að hafa tekið á móti öðrum nemendum FAS ætlar hópurinn að fara leiki og frisbígolf og umfram allt að hafa gaman saman.
Á morgun tekur svo alvara lífsins við en þá hefjast lokamatsviðtöl. Þau viðtöl standa til fimmtudags 22. maí. Útskrift verður svo laugardaginn 24. maí.