Fréttir

Kaffiboð á Nýtorgi

Í dag var komið að síðasta kaffiboðinu á þessari önn á Nýtorgi. Það var starfsfólk á neðri hæð Nýheima sem sá um veitingarnar að þessu sinni og það var svo sannarlega úr mörgu að velja. Það hefur margoft sýnt sig að þessi sameiginlegu kaffiboð þar sem íbúar hússins skiptast á að koma með veitingar eru mikilvæg. Ekki bara til að gleðja munn og maga heldur einnig til að kynnast öðrum þeim sem starfa dagsdaglega í húsinu.