Námsráðgjafi
Námsráðgjafi veitir nemendum leiðsögn í persónulegum málum sem snerta námið og skólann. Námsráðgjafi er trúnaðarmaður nemenda gagnvart kennurum, öðrum starfsmönnum og skólastjórnendum og tekur þátt í að skipuleggja ýmsar aðgerðir til að stuðla að betri líðan nemenda í skólanum. Hann sér um og skipuleggur náms- og starfsfræðslu í skólanum. Hann vinnur með skólameistara og forvarnarfulltrúa að vímuvörnum í samræmi við stefnu skólans í þeim efnum. Hann hefur tiltækt það kynningarefni sem til er um skólann og miðlar til þeirra sem eftir því leita. Námsráðgjafi er tengiliður skólans við félags– og heilbrigðiskerfi sveitarfélagsins.