haus26.jpg
Forsíđa
Haustönn 2010
Námsframbođ
Um skólann
Leit
Fréttir
Myndasafn
Samstarfsverkefni
Annáll FAS
Innritun
Vefpóstur | Kennsluvefur | Inna fyrir nemendur | Inna fyrir kennara
Forsíđa arrow Námsframbođ arrow Félagsfrćđibraut (FÉ)
Félagsfrćđibraut (FÉ)
Nýtt nemendafélag tekur til starfa Print
föstudagur, 03 september 2010

Nemendafélag FAS 2010 - 2011. Í þessari viku tók nýtt nemendafélag í FAS til starfa. Þetta eru þau: Hafdís Hauksdóttir, Jón Snorri Þorsteinsson, Margrét Vignisdóttir, Ottó Marvin Gunnarsson og Valur Zophoníasson. Krakkarnir hafa ekki enn skipt með sér verkum en eru komnir á fullt með að undirbúa starfsemi vetrarins.
Lögð verður áhersla á fjölbreytta starfsemi sem bæði verður hressandi og spennandi. Aðalmarkmið félagsins er að fá sem flesta til að vera með. Í næstu viku er að vænta kynningarfundar þar sem nýjar áherslur og hugmyndir verða kynntar.
Meðfylgandi mynd var tekin í dag þegar stjórnin fundaði en á myndina vantar Margréti Vignisdóttur. 

Aftur í nám Print
miđvikudagur, 01 september 2010

Aftur í nám. Í fyrrahaust var farið af stað með nám í íslensku og stærðfræði fyrir þá sem að höfðu verið frá námi í einhvern tíma. Upphafið að þessu námi má rekja til raunfærnimats í vélvirkjun á vegum Þekkingarnetsins; þar sem þeir sem höfðu mikla starfsþekkingu fengu hana metna. Til að öðlast réttindi þurfti að taka nokkrar almennar bóklegar greinar. Margir aðrir nýttu sér þetta tækifæri til að fara aftur í skóla. Í fyrravetur stunduðu 15 - 20 manns þetta nám.
Núna er boðið upp á ensku og dönsku. Alls eru 25 nemendur skráðir í ensku og 17 á dönsku. Fyrirkomulagið er með sama sniði og í fyrra, þ.e. nemendur eru í skólanum frá 16 - 19 mánudaga til fimmtudaga og gert er ráð fyrir að hægt sé að ljúka öllu námi á þeim tíma. Það er gleðilegt að sjá hversu margir hafa skráð sig og vonum við að þeim farnist námið vel. 

Busavígsla Print
föstudagur, 27 ágúst 2010
Boðið upp á hákarl. Í gær fór fram hin árlega busavígsla. Nýmemar áttu að mæta í klæðnaði sem alla jafna þykir ekki mjög fínn. Þeim var boðið upp á morgunhressingu sem samanstóð af mysu, lýsi og hákarli. Þá þurfti að syngja fyrir eldri nemendur og leysa ýmsar þrautir.
Aðalvígslan fór svo fram á flötinni hjá Nettó. Þar hafði verið sett upp þrautabraut sem nemendur þurftu að fara í gegnum.
Nú teljast nýnemar fullgildir nemendur í FAS og eru þeir sérstalega boðnir velkomnir í skólann. 
Nemendur frá Tríer í heimsókn Print
fimmtudagur, 26 ágúst 2010

Hópurinn frá Tríer. Í gær komu til Hornafjarðar tæplega þrír tugir nemenda og kennara frá Max-Planck Gymnasium í Tríer í Þýskalandi. Hér voru á ferð nemendur sem okkar nemendur heimsóttu í vor þegar þeir fóru til Þýskalands. Eftir að hafa fengið kvöldmat í Nýheimum fóru nemendur i gistingu á nokkrum stöðum á Höfn auk þess sem ríflega tugur gisti á fjósloftinu á Seljavöllum.
Eftir morgunmat í morgun voru Nýheimar skoðaðir og einnig var farið á Jöklasafnið sem hópnum fannst mjög áhugavert. Héðan heldur hópurinn svo austur á bóginn og mun dvelja næstu daga Egilsstöðum hjá félugum sínum í ME og VA.
Þó hér hafi verið staldrað stutt við voru gestirnir alsælir og þakklátir þeim öllum sem skutu skjólshúsi yfir þá síðast liðna nótt. 

Skólinn settur Print
mánudagur, 23 ágúst 2010
skolasetning Í morgun hófst skólastarfið í FAS. Að lokinni setningu voru haldnir umsjónarfundir þar sem nemendur fengu stundatöflu og farið var yfir það sem framundan er. Eftir umsjónarfund var boðið upp á grillaða hamborgara sem runnu ljúflega niður.
Kennsla hefst í fyrramálið samkvæmt stundaskrá. Þeir sem enn eru að velta því fyrir sér hvort hægt sé að fara í nám eru ekki orðnir of seinir að skrá sig en lokað er fyrir skráningar 2. september. Upplýsingar um nám og námsframboð er að finna á vef skólans. 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 1 - 9 af 595
Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu | Nýheimum | 780 Höfn | Sími 470 8070 | Fax 470 8071 | fas@fas.is