haus56.jpg
Forsíđa
Haustönn 2010
Námsframbođ
Um skólann
Leit
Fréttir
Myndasafn
Samstarfsverkefni
Annáll FAS
Innritun
Vefpóstur | Kennsluvefur | Inna fyrir nemendur | Inna fyrir kennara
Forsíđa
Aftur í nám
miđvikudagur, 01 september 2010

Aftur í nám. Í fyrrahaust var farið af stað með nám í íslensku og stærðfræði fyrir þá sem að höfðu verið frá námi í einhvern tíma. Upphafið að þessu námi má rekja til raunfærnimats í vélvirkjun á vegum Þekkingarnetsins; þar sem þeir sem höfðu mikla starfsþekkingu fengu hana metna. Til að öðlast réttindi þurfti að taka nokkrar almennar bóklegar greinar. Margir aðrir nýttu sér þetta tækifæri til að fara aftur í skóla. Í fyrravetur stunduðu 15 - 20 manns þetta nám.
Núna er boðið upp á ensku og dönsku. Alls eru 25 nemendur skráðir í ensku og 17 á dönsku. Fyrirkomulagið er með sama sniði og í fyrra, þ.e. nemendur eru í skólanum frá 16 - 19 mánudaga til fimmtudaga og gert er ráð fyrir að hægt sé að ljúka öllu námi á þeim tíma. Það er gleðilegt að sjá hversu margir hafa skráð sig og vonum við að þeim farnist námið vel. 

Busavígsla
föstudagur, 27 ágúst 2010
Boðið upp á hákarl. Í gær fór fram hin árlega busavígsla. Nýmemar áttu að mæta í klæðnaði sem alla jafna þykir ekki mjög fínn. Þeim var boðið upp á morgunhressingu sem samanstóð af mysu, lýsi og hákarli. Þá þurfti að syngja fyrir eldri nemendur og leysa ýmsar þrautir.
Aðalvígslan fór svo fram á flötinni hjá Nettó. Þar hafði verið sett upp þrautabraut sem nemendur þurftu að fara í gegnum.
Nú teljast nýnemar fullgildir nemendur í FAS og eru þeir sérstalega boðnir velkomnir í skólann. 
Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu | Nýheimum | 780 Höfn | Sími 470 8070 | Fax 470 8071 | fas@fas.is